Búa til vörumerki

Vörumerki ræður því hvernig tilkynningarnar ykkar og síða viðtakandans líta út: nafn, merki, litir og uppsetning. Þú getur haft fleiri en eitt, til dæmis eitt fyrir hverja deild, og valið eitt fyrir hverja sendingu. Hver sending heldur þeirri útgáfu sem hún var send með.

Hverjir geta gert þetta: eigandi og stjórnendur (heimildin Sjá um vörumerki). Útlitið fylgir öllum þjónustuleiðum; eigið lén hlekkja og eigin sendandi tölvupósts fylgja Plan 1 og ofar.

Vörumerki með léni hlekkja, sendanda tölvupósts og útgáfu

Búa til vörumerki

  1. Opnaðu Vörumerki og smelltu á + Nýtt vörumerki.
  2. Undir Vörumerkið gefur þú því Heiti sem aðeins þið sjáið, til dæmis „Innheimta“. Hakaðu við Sjálfgefið vörumerki fyrirtækisins ef sendingar sem nefna ekkert vörumerki eiga að fá þetta.
  3. Undir Sendandinn slærðu inn Nafn sendanda eins og viðtakendur eiga að sjá það og, ef þú vilt, nafnið í þágufalli („Sending frá …“), netfang, síma og vefsíðu aðstoðar.
  4. Undir Merki og haus hleður þú upp Merki (PNG eða SVG, mest 1 MB) og, ef þú vilt, Táknmynd í vafraflipa. Veldu útlit haussins: Borði, Bréfsefni eða Einfalt.
  5. Undir Litir velur þú lit við Litur vörumerkis og aðra liti eftir þörfum. Hvert litapar þarf að ná birtuskilum upp á minnst 4,5:1 (WCAG 2.2 AA) svo allir geti lesið; annars er vistun hafnað.
  6. Undir Lögun og letur og Uppsetning síðu velur þú rúnun, letur og uppsetningu (Spjald, Skipt, Borðamynd eða Baksvið; þrjár þær síðastnefndu með mynd).
  7. Skoðaðu Forskoðun til hægri: síðu viðtakanda og tölvupóstinn, á íslensku og ensku, í tölvu og síma. Smelltu á Senda prufupóst til að sjá hann í pósthólfinu þínu. Ritill vörumerkis með forskoðun sem uppfærist jafnóðum
  8. Smelltu á Vista sem nýja útgáfu.

Það sem viðtakendur sjá

Vörumerkið er notað í tilkynningunni í tölvupósti og á síðunni þar sem viðtakandinn opnar sendinguna.

Tilkynning í tölvupósti í útliti fyrirtækis

Sumt birtist alltaf, sama hvað vörumerkið segir: nafn sendanda, „Innskráningin staðfestir móttöku“, að sérhver auðkenning sé skráð og „Keyrt af Parasend“ neðst. Það hjálpar viðtakendum að treysta sendingunni.

Breyta vörumerki eða setja það í geymslu

Smelltu á Breyta í listanum, breyttu því sem þarf og smelltu á Vista sem nýja útgáfu. Sendingar sem þegar eru farnar halda sinni útgáfu. Til að hætta að nota vörumerki smellir þú á Setja í geymslu.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir ábendinguna Ekki tókst að senda ábendinguna. Reyndu aftur síðar.