Búa til og sjá um API-lykla

API-lyklar tengja ykkar eigin kerfi (til dæmis CRM-kerfi, reikningakerfi eða málakerfi) við Parasend. Hver lykill er bundinn manneskju með rafrænum skilríkjum hennar, og hún ber ábyrgð á því sem sent er með honum. Lyklarnir tilheyra fyrirtækinu.

Hverjir geta gert þetta: eigandi, stjórnendur, forritarar og aðrir með heimildina API-lyklar og vefkrókar. Þú staðfestir að þetta sért þú þegar þú býrð til eða endurnýjar lykil.

Prófunarlyklar og raunlyklar

  • Í prófunargögnum byrja lyklar á ps_test_ og senda ekkert til raunverulegra viðtakenda. Þú getur sýnt prófunarlykil aftur síðar.
  • Í raungögnum byrja lyklar á ps_live_ og senda raunverulegar sendingar. Raunlykill birtist aðeins einu sinni, þegar þú býrð hann til.

Báðir nota sama API-vistfang, https://api.parasend.com/v1: lykillinn ræður. Þú skiptir á milli prófunargagna og raungagna með rofanum í efstu stikunni.

API-lyklar með heimildum, handhafa, síðustu notkun og aðgerðum

Búa til lykil

  1. Opnaðu API-lyklar og smelltu á + Búa til lykil.
  2. Gefðu honum Heiti sem þú þekkir aftur, til dæmis nafn kerfisins sem notar hann.
  3. Veldu aðgang lykilsins undir Aðgangur:
    • Sendingar: stofna sendingar og herferðir, hlaða upp skrám, fylgja eftir og sækja sönnunargögn.
    • Lesaðgangur: lesa sendingar, herferðir, atburði og sönnunargögn, ekkert annað.
    • Fullur aðgangur: allt sem hlutverk þitt leyfir, líka að breyta stillingum og eyða.
    • Sérsniðið: veldu aðgang fyrir hvern flokk.
    Nýr API-lykill: heiti, aðgangur og takmarkanir
  4. Ef þú vilt geturðu opnað Takmarkanir og stillt hve lengi lykillinn gildir undir Gildistími (30 dagar, 90 dagar, 1 ár, ákveðin dagsetning eða ótímabundið) og hvaðan má nota hann undir Leyfð IP-tölur (ein IP-tala eða CIDR-svið í hverri línu; autt þýðir hvaðan sem er).
  5. Smelltu á Búa til lykil, staðfestu að þetta sért þú og afritaðu lykilinn inn í kerfið ykkar.

Sjá um lykla

Aðgerð Hvað hún gerir
Sýna Sýnir prófunarlykil aftur. Ekki er hægt að sýna raunlykla aftur.
Breyta Breyta heiti, aðgangi eða takmörkunum.
Endurnýja Býr til nýjan leynilykil sem birtist einu sinni. Sá gamli virkar áfram í 24 klukkustundir, svo kerfin ykkar geti skipt án truflunar. Þarftu að stöðva hann strax? Notaðu Eyða frekar.
Eyða Lykillinn hættir strax að virka. Aðeins sá sem lykillinn er bundinn, eða eigandinn, getur eytt honum.

Farðu með lykla eins og lykilorð: geymdu þá í lyklageymslu kerfisins, aldrei í kóða eða tölvupósti. Þegar einhver sem hefur lykla hættir skaltu endurnýja eða eyða lyklum viðkomandi um leið og þú fjarlægir hann úr teyminu: sjá Breyta, fjarlægja eða skipta út meðlimi.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir ábendinguna Ekki tókst að senda ábendinguna. Reyndu aftur síðar.