Staðfesta fyrirtækið

Fyrirtækjaaðgangur er staðfestur þegar Parasend hefur staðfest fyrirtækið í fyrirtækjaskrá Skattsins. Staðfest fyrirtæki getur sent raunsendingar og notað fríar sendingar og greiddar þjónustuleiðir, og viðtakendur sjá nafn þess nákvæmlega eins og það er skráð í fyrirtækjaskrá.

Flest fyrirtæki eru staðfest við nýskráningu. Ef þitt var það ekki getur þú staðfest það hvenær sem er undir Stillingar fyrirtækisins.

Hverjir geta gert þetta: eigandi aðgangsins eða stjórnandi.

Athugaðu stöðuna

Opnaðu Stillingar fyrirtækisins. Spjaldið Staðfesting fyrirtækis sýnir eina af þremur stöðum:

Staða Hvað hún þýðir
Óstaðfest Lokað er fyrir raunsendingar. Á meðan getur þú unnið í prófunargögnum.
Bíður staðfestingar Beðið er eftir samþykki einhvers sem fyrirtækjaskrá skráir hjá félaginu. Aðgangurinn virkar eins og áður.
Staðfest Lokið. Spjaldið sýnir hver staðfesti fyrirtækið, hvernig og hvenær.
Spjaldið Staðfesting fyrirtækis sýnir Staðfest

Staðfesta fyrirtækið

  1. Á spjaldinu Staðfesting fyrirtækis smellir þú á Staðfesta fyrirtækið.
  2. Veldu landið og sláðu inn kennitölu fyrirtækisins. Smelltu á Fletta upp og athugaðu hvað fyrirtækjaskrá sýnir. Flettu fyrirtækinu upp eftir kennitölu
  3. Smelltu á Staðfesta.
    • Ef fyrirtækjaskrá skráir þig sem framkvæmdastjóra, prókúruhafa, stjórnarformann eða stjórnarmann staðfestir þú með rafrænum skilríkjum eða aðgangslykli. Fyrirtækið er staðfest strax.
    • Annars biður þú einhvern sem þar er skráður um samþykki, eins og lýst er í Stofna fyrirtækjaaðgang. Spjaldið sýnir Bíður staðfestingar þar til svar berst.

Ef heiti aðgangsins er annað en í fyrirtækjaskrá fær aðgangurinn heitið úr fyrirtækjaskrá þegar hann er staðfestur.

Fyrirtæki utan Íslands

Fyrirtæki skráð erlendis eru staðfest með skjölum: útdrætti úr fyrirtækjaskrá, ekki eldri en þriggja mánaða, og umboði ef þú ert ekki nefnd eða nefndur í honum. Starfsfólk Parasend fer yfir þau innan 4 virkra daga. Skrifaðu á support@parasend.com til að byrja.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir ábendinguna Ekki tókst að senda ábendinguna. Reyndu aftur síðar.