Þú hefur fengið sendingu í gegnum Parasend

Fyrirtæki eða einstaklingur hefur sent þér skjöl í gegnum Parasend, rekjanlega rafræna afhendingarþjónustu. Í stað þess að hengja skjölin við tölvupóst var þér sendur öruggur hlekkur. Þú opnar skjölin með því að staðfesta hver þú ert með rafrænum skilríkjum, og það staðfestir um leið að þú hafir tekið við þeim.

Þú þarft ekki aðgang að Parasend og það kostar þig ekkert.

Skref 1: Opnaðu tilkynninguna

Þú fékkst tölvupóst eða SMS-skilaboð um að einhver hafi sent þér sendingu. Þar kemur fram sendandinn, heiti sendingarinnar og hve lengi hún er aðgengileg. Skjölin sjálf eru aldrei í tilkynningunni. Smelltu á Opna sendinguna.

Tilkynning í tölvupósti um sendingu

Skref 2: Sjáðu hvað var sent

Á síðu sendingarinnar sést sendandinn, skilaboð frá honum ef einhver eru og hve mörg skjöl bíða. Ef sendandinn hefur kveikt á aukinni vernd birtast heiti og innihald skjalanna ekki fyrr en þú hefur staðfest. Smelltu á Opna með rafrænum skilríkjum.

Síða sendingarinnar hjá viðtakanda

Skref 3: Staðfestu hver þú ert

Auðkenndu þig með Auðkennisappinu eða rafrænum skilríkjum í símanum (SIM). Innskráningin staðfestir móttöku sendingarinnar. Sjá Opna sendingu með rafrænum skilríkjum.

Skref 4: Sæktu skjölin

Þegar þú hefur staðfest hlaðast skjölin niður í tækið þitt. Þú getur líka sótt sendingarvottorðið, sönnun þína fyrir því hvað þú fékkst og hvenær.

Móttaka staðfest, með skjölunum og sendingarvottorðinu

Þú getur opnað skjölin aftur með sama hlekk fram að deginum sem tilgreindur er á síðunni.

Gott að vita

  • Tungumál: skiptu á milli IS og EN efst á síðunni.
  • Útrunnin eða afturkölluð: ef síðan segir að sendingin sé útrunnin eða hafi verið afturkölluð eru skjölin ekki lengur aðgengileg. Hafðu samband við sendandann til að fá nýja sendingu.
  • Allar tilraunir eru skráðar: líka tilraunir sem mistakast eða er hætt við.
  • Spurningar um skjölin fara til sendandans, ekki Parasend: Parasend sér ekki hvað er í þeim.

Parasend biður aldrei um lykilorð eða kortaupplýsingar. Ef skilaboð biðja um slíkt eru þau ekki frá okkur. Sjá Eru skilaboðin raunverulega frá Parasend?

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir ábendinguna Ekki tókst að senda ábendinguna. Reyndu aftur síðar.