Finna sendingar
Síðan Sendingar sýnir allar sendingar aðgangsins, nýjustu fyrst. Þú getur leitað í listanum, síað hann og raðað honum.
Leita
Skrifaðu í leitarreitinn og smelltu á Leita. Þú getur leitað eftir nafni, netfangi eða kennitölu viðtakanda, eftir titli eða eftir auðkenni sendingar.
Sía
- Smelltu á + Bæta við síu.
- Veldu Staða, Tegund, Herferð (auðkenni hennar, sem byrjar á
bat_) eða tímabil með Frá og Til. - Smelltu á Nota síur. Virkar síur birtast fyrir ofan listann; fjarlægðu þær eina í einu eða allar í einu.

Raða
Smelltu á dálkfyrirsögn með örvum, eins og Viðtakandi, Titill, Staða eða Stofnuð, til að raða eftir henni. Smelltu aftur til að snúa röðinni við.
Hvað dálkarnir sýna
- Auðkenni: síðasti hluti auðkennis sendingarinnar.
- Viðtakandi: nafn og netfang (og kennitala, ef þú slóst hana inn).
- Herferð: herferðin sem sendingin tilheyrir, ef einhver.
- Staða: hvar sendingin stendur, með nýjasta atburðinum fyrir neðan, til dæmis Skjal sótt.
Listinn sýnir raungögn eða prófunargögn, eftir því hvernig rofinn í efstu stikunni stendur. Sjá Prófunargögn og raungögn.
