Bjóða fólki í teymið

Fyrirtækjaaðgangi fylgir teymi. Bjóddu samstarfsfólki þínu í teymið svo það geti sent sendingar og fylgst með þeim í nafni fyrirtækisins, hvert með hlutverk sem hentar starfi þess.

Hverjir geta gert þetta: eigandinn, stjórnendur og meðlimir með heimildina Bjóða í teymið. Boð getur aðeins gefið heimildir sem þú hefur.

Bjóða einhverjum

  1. Opnaðu Teymi og smelltu á + Bjóða í teymið. Á síðunni sést hve mörg sæti eru í notkun. Meðlimir teymisins, sæti í notkun og opin boð
  2. Sláðu inn netfang viðkomandi í reitinn Netfang. Reiturinn Nafn er valfrjáls og hjálpar þér bara að þekkja boðið; nafnið í rafrænum skilríkjum viðkomandi kemur í staðinn þegar boðið er samþykkt.
  3. Ef þú vilt geturðu líka slegið inn kennitölu viðkomandi undir Kennitala, eða leitað í Þjóðskrá eftir nafni og fæðingarári. Þá getur aðeins sú manneskja samþykkt boðið, með rafrænum skilríkjum sínum.
  4. Veldu Hlutverk: Stjórnandi, Forritari, Sendandi, Lesaðgangur eða Greiðslur. Línan undir hnöppunum segir hvað hlutverkið gerir. Sjá Hlutverk og heimildir. Bjóða í teymið: netfang, nafn, kennitala og hlutverk
  5. Undir Hvaða sendingar sér viðkomandi? velurðu Allar sendingar teymisins eða Aðeins eigin sendingar.
  6. Breyttu einstökum heimildum undir Heimildir ef þarf og smelltu á Senda boð.

Það sem sá sem fær boðið gerir

Viðkomandi fær tölvupóst með hlekk. Hann opnar hlekkinn, skráir sig inn með rafrænum skilríkjum (eða stofnar aðgang fyrst) og er þá kominn í teymið.

Opin boð

  • Boð gilda í 7 daga og hvert boð virkar aðeins einu sinni.
  • Boð taka ekki sæti, aðeins meðlimir sem hafa samþykkt.
  • Undir Opin boð smellirðu á Senda aftur til að senda tölvupóstinn aftur, eða á Hætta við til að draga boðið til baka.

Notarðu Okta eða Microsoft Entra ID? Með notendastýringu (SCIM) bætir auðkennisveitan fólki í teymið fyrir þig. Sjá Innskráning með SSO og reglur um innskráningu.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir ábendinguna Ekki tókst að senda ábendinguna. Reyndu aftur síðar.