Flytja eignarhald aðgangsins

Fyrirtækjaaðgangur hefur einn eiganda. Til að afhenda aðganginn, til dæmis þegar þú hættir hjá fyrirtækinu, flytur þú eignarhaldið til annars meðlims.

Hverjir geta gert þetta: aðeins eigandinn.

Hefja flutninginn

  1. Opnaðu Teymi, smelltu á ··· við nýja eigandann og veldu Gera að eiganda.
  2. Lestu hvað gerist og smelltu á Staðfesta að þetta sért þú. Staðfestu svo með rafrænum skilríkjum.

Flutningurinn bíður nú samþykkis. Nýi eigandinn fær tölvupóst og hefur 7 daga til að samþykkja hann. Þangað til geturðu smellt á Hætta við flutninginn. Stjórnendur fá að vita af hverju skrefi.

Samþykkja flutninginn (nýi eigandinn)

  1. Opnaðu hlekkinn í tölvupóstinum, eða smelltu á Skoða og samþykkja í borðanum í gáttinni.
  2. Lestu Hvað breytist og smelltu á Samþykkja (eða Hafna).

Hvað breytist

  • Nýi eigandinn fær allar heimildir, þar á meðal greiðslur og flutning eignarhalds.
  • Fyrri eigandi verður stjórnandi og heldur aðgangi sínum.
  • Enginn getur fjarlægt eigandann eða breytt hlutverki hans. Eignarhaldið færist aðeins aftur á sama hátt.
Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir ábendinguna Ekki tókst að senda ábendinguna. Reyndu aftur síðar.