Velja sendanda SMS-skilaboða
Efst í SMS-skilaboðum birtist nafn sendanda. Án eigin nafns koma þau frá PARASEND. Með eigin nafni sjá viðtakendur nafn fyrirtækisins ykkar í staðinn.
Hverjir geta gert þetta: eigandi og stjórnendur, í vörumerki.
Stilla nafn sendanda
- Opnaðu Vörumerki, smelltu á Breyta við vörumerkið og finndu Sendandi SMS-skilaboða undir Sendandinn.
- Sláðu inn nafnið: 3–11 bókstafir (a–z) eða tölustafir, a.m.k. einn bókstafur, án bila, bandstrika og íslenskra stafa. Það má ekki nefna Parasend. Símar sýna það alltaf í hástöfum.
- Smelltu á Vista sem nýja útgáfu.
Samþykki
Parasend athugar að hvert nýtt nafn tilheyri fyrirtækinu ykkar áður en það er notað. Þangað til það er samþykkt koma SMS frá PARASEND. Þegar það hefur verið samþykkt kemur það fram í vörumerkinu.
Nafnið ykkar er notað í SMS á íslensk númer. Skilaboð á erlend númer koma alltaf frá PARASEND.