Bæta við korti eða breyta greiðslumáta

Þjónustuleiðin er greidd með korti eða kröfu í netbanka (krafa stofnuð í netbanka og reikningurinn sendur í tölvupósti). Pay-as-you-go er alltaf greitt með korti.

Hverjir geta gert þetta: eigandi, stjórnendur og meðlimir með heimildina Notkun, reikningar og greiðslumátar.

Bæta við korti

  1. Opnaðu Þjónustuleið og greiðslur og flipann Greiðslumáti.
  2. Undir Greiðslukort smellir þú á Bæta við korti og slærð inn kortaupplýsingarnar í örugga forminu. Bankinn gæti beðið þig að staðfesta. Kortið er staðfest án gjaldtöku. Greiðslumáti: greiðslukort, krafa í netbanka og kort

Teya, færsluhirðir Parasend, sér um kortagreiðslur.

Aðalkort og varakort

Kortið sem er merkt Aðalkort er skuldfært mánaðarlega fyrir notkun, samkvæmt reikningi mánaðarins. Ef því er hafnað er kortið merkt Varakort skuldfært strax. Notaðu Gera að aðalkorti, Hætta að nota sem varakort, Gefa heiti og Fjarlægja til að sjá um kortin.

Skipta á milli korts og kröfu í netbanka

Neðst í flipanum smellir þú á Skipta yfir við þann greiðslumáta sem þú vilt nota og staðfestir. Næsti reikningur er greiddur á þann hátt. Leiðir sem þjónustuleiðin þín býður ekki upp á eru gráar og sagt hvers vegna (til dæmis er krafa í netbanka aðeins fyrir íslensk fyrirtæki).

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir ábendinguna Ekki tókst að senda ábendinguna. Reyndu aftur síðar.