Reikningar, notkun og reikningsupplýsingar

Allt um það sem þú greiðir er undir Þjónustuleið og greiðslur.

Notkun mánaðarins

Flipinn Yfirlit sýnir, fyrir yfirstandandi mánuð, notaðar innifaldar sendingar, gjaldfærðar sendingar, auðkenningar með rafrænum skilríkjum og vegabréfi, SMS innanlands og til útlanda, ókeypis færslur sem eftir eru og Áætlun mánaðarins. Smelltu á Sækja notkun (CSV) til að fá sundurliðun. Reikningurinn er gerður 1. næsta mánaðar.

Notkun og áætlun mánaðarins

Reikningar

Flipinn Reikningar sýnir alla reikninga með tímabili, númeri, dagsetningum, upphæð og stöðu. Smelltu á PDF til að sækja reikning.

Staða Hvað hún þýðir
Greitt Reikningurinn er greiddur.
Ógreitt / Gjaldfallið Bíður greiðslu, eða kominn fram yfir gjalddaga. Sjá Greiða gjaldfallinn reikning.
Greiðsla tókst ekki Kortinu var hafnað. Greiddu með öðru korti.
Kreditfært Kreditreikningur fellir reikninginn niður.
Ógilt Reikningurinn var felldur niður og er ekki til greiðslu.

Greiðslustaða er athuguð á klukkutíma fresti, svo reikningur sem þú varst að greiða getur birst ógreiddur í allt að klukkutíma.

Reikningsupplýsingar

Í flipanum Reikningsupplýsingar smellir þú á Breyta til að breyta:

  • Netfang fyrir reikninga og Tungumál reikninga (íslenska eða enska),
  • Heimilisfang (fyllt út úr fyrirtækjaskrá; þú mátt breyta því) og VSK-númer,
  • Snið reikninga: PDF-reikningur í tölvupósti og/eða rafrænn reikningur (XML) beint í bókhaldskerfið ykkar,
  • Mánaðarhámark í krónum án VSK. Sendingu sem færi yfir hámarkið er hafnað þar til þú hækkar það eða nýr mánuður hefst.
Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir ábendinguna Ekki tókst að senda ábendinguna. Reyndu aftur síðar.