Greiða gjaldfallinn reikning

Ef reikningur er ekki greiddur á réttum tíma sýnir gáttin hann sem Gjaldfallið, ásamt gjalddaga og eindaga. Þú getur greitt hann strax með korti.

Greiða núna

  1. Opnaðu Þjónustuleið og greiðslur og flipann Reikningar og smelltu á reikninginn.
  2. Smelltu á Greiða núna. Veldu kort undir Kort til að greiða með, eða Bæta við nýju korti.
  3. Smelltu á Greiða og staðfestu hjá bankanum ef beðið er um það. Greiðslan fer í gegnum Teya, færsluhirði Parasend.

Þá birtist Reikningurinn er greiddur. Takk fyrir. Ef reikningurinn hafði þegar verið greiddur á annan hátt er kortagreiðslan endurgreidd sjálfkrafa.

Ef ógreiddir reikningar safnast upp

Þegar ógreiddir reikningar fara yfir það sem aðgangurinn leyfir kemur fram í viðvörun hvaða dag nýjar sendingar stöðvast nema reikningarnir séu greiddir. Greiddu þá fyrir þann tíma til að halda áfram að senda.

Spurningar um reikning? Skrifaðu á info@parasend.com og tilgreindu númer reikningsins.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir ábendinguna Ekki tókst að senda ábendinguna. Reyndu aftur síðar.