Staðfesta auðkenni

Ef þú skráðir þig með netfangi veit Parasend netfangið þitt en ekki hver þú ert. Þar til þú staðfestir auðkenni þitt:

  • eru sendingar frá þér merktar Óstaðfestur sendandi,
  • fara tilkynningar aðeins með tölvupósti, ekki SMS, og
  • getur þú ekki valið þjónustuleið.

Staðfesting með rafrænum skilríkjum fjarlægir allar þrjár takmarkanirnar.

Staðfesta með rafrænum skilríkjum

  1. Smelltu á Staðfesta með rafrænum skilríkjum í borðanum Auðkenni ekki staðfest, eða opnaðu Öryggi undir nafninu þínu efst til hægri.
  2. Auðkenndu þig með Auðkennisappinu eða rafrænum skilríkjum í síma.
  3. Kennitalan þín bætist við aðganginn og nafnið þitt verður staðfest.

Staðfesta með vegabréfi eða persónuskilríkjum (væntanlegt)

Fyrir þau sem eru ekki með íslensk rafræn skilríki er staðfesting með vegabréfi eða persónuskilríkjum og sjálfsmynd væntanleg. Hún verður undir Öryggi, þar sem hún er merkt Væntanlegt þar til hún opnar. Við uppfærum þessa grein þegar það gerist.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir ábendinguna Ekki tókst að senda ábendinguna. Reyndu aftur síðar.