Senda sendingu

Sending flytur eitt eða fleiri skjöl til eins viðtakanda, sem þarf að auðkenna sig áður en hann getur opnað þau. Hér er farið yfir eyðublaðið Ný sending ofan frá og niður.

Hverjir geta gert þetta: notendur í teyminu sem hafa hlutverk með heimildinni Stofna og senda sendingar. Til að senda mörgum viðtakendum í einu notarðu herferð í staðinn.

Skref 1: Byrjaðu nýja sendingu

Smelltu á + Ný sending á Yfirliti eða efst á síðunni Sendingar.

Ef efst á eyðublaðinu stendur Prófunarhamur er á ertu í prófunargögnum: sendingin berst ekki til viðtakandans. Smelltu á Skipta yfir í raungögn til að senda hana í alvöru. Sjá Prófunargögn og raungögn.

Skref 2: Bættu við skjölunum

Undir Skjöl dregurðu skrárnar í reitinn eða smellir á veldu skjöl. Þú getur bætt við mörgum skjölum, samtals allt að 250 MB. Smelltu á Sækja til að athuga skjal, eða á × til að fjarlægja það.

Reiturinn Skjöl með tveimur PDF-skjölum

Skref 3: Sláðu inn viðtakandann

  1. Leitaðu að viðtakandanum í leitarreitnum. Fyrri viðtakendur birtast fyrst. Þú getur líka leitað í Þjóðskrá eftir nafni (með fæðingarári eða bæjarfélagi ef þarf, til dæmis „Jón Jónsson 1982“) eða eftir kennitölu. Allar leitir eru skráðar.
  2. Athugaðu eða skrifaðu Fullt nafn eins og það á að standa í sönnunargögnunum, og Netfang viðtakandans, Farsímanúmer eða hvort tveggja. Fyrir númer utan Íslands þarf landsnúmerið að fylgja.
  3. Undir Tilkynna með velurðu Tölvupósti, SMS eða Tölvupósti og SMS. Fyrsta tilkynningin og allar áminningar fara þessa leið. Viðtakandi: nafn, netfang, farsímanúmer og Tilkynna með

Skref 4: Aukin vernd

Aukin vernd tryggir að aðeins rétti einstaklingurinn geti opnað sendinguna. Sjálfgefið er kveikt á henni. Veldu Samsvörun og sláðu inn kennitölu viðtakandans (eða númer vegabréfs eða persónuskilríkja). Öllum öðrum sem opna hlekkinn er hafnað, og titillinn er falinn þar til viðtakandinn hefur staðfest hver hann er.

Aukin vernd með kennitölu viðtakandans

Ef þú veist ekki kennitölu viðtakandans skaltu slökkva á rofanum Aukin vernd. Viðtakandinn þarf samt að auðkenna sig og sönnunargögnin sýna hver gerði það.

Skref 5: Veldu auðkenningarstig

Auðkenningarstig ræður því hversu sterkt viðtakandinn þarf að auðkenna sig. Sjálfgefið er stigið Hátt (rafræn skilríki). Hakaðu aðeins við veikara stig ef þú sættir þig við það fyrir þessa sendingu. Sjá Velja hvernig viðtakendur auðkenna sig.

Auðkenningarstig: Hátt, Verulegt, Lágt og Ekkert

Skref 6: Bættu við titli og skilaboðum (valkvætt)

  • Titill birtist í tilkynningunni og í sendingalistanum.
  • Skilaboð til viðtakanda (allt að 1.000 stafir) birtast í tilkynningunni og áður en viðtakandinn auðkennir sig. Þau eru ekki hluti af sönnunargögnunum, svo ekki setja trúnaðarupplýsingar í þau.
Titill og skilaboð

Skref 7: Farðu yfir valkostina

Valkostir: gildistími, vörumerki, eftirfylgniregla, fela nafn starfsmannsins og tungumál tilkynningar
Valkostur Hvað hann gerir
Gildistími Hve lengi viðtakandinn hefur til að opna sendinguna: 7, 14, 30, 60 eða 90 dagar, eða dagsetning sem þú velur.
Vörumerki Hvernig tilkynningin og síða viðtakandans líta út. Sendingin heldur þeirri útgáfu sem hún er send með. Sjá Búa til vörumerki.
Eftirfylgniregla Sjálfvirkar áminningar ef viðtakandinn opnar ekki sendinguna. Tímalínan sýnir hvenær hver áminning fer. Sjá Svona virka eftirfylgnireglur.
Fela nafn starfsmannsins Viðtakandinn sér aðeins nafn fyrirtækisins, ekki hver sendi. Hver sendi er samt skráð hjá ykkur.
Tungumál tilkynningar Íslenska eða English: tungumál tilkynningarinnar og síðunnar sem viðtakandinn opnar.

Skref 8: Sendu

Dökka spjaldið neðst til hægri dregur sendinguna saman: lágmarksstigið sem viðtakandinn þarf að auðkenna sig á, fjölda skjala og hvort kveikt er á aukinni vernd. Smelltu á Senda.

Spjaldið Senda með lágmarks fullvissustigi auðkenningar

Ef eitthvað vantar kemur ástæðan fram undir spjaldinu, til dæmis Sláðu inn kennitölu viðtakanda eða slökktu á aukinni vernd til að geta sent.

Eftir að þú sendir ferðu beint á síðu sendingarinnar. Sjá Fylgjast með sendingu.

Svaraði þetta spurningunni þinni? Takk fyrir ábendinguna Ekki tókst að senda ábendinguna. Reyndu aftur síðar.